Starfsleyfi til kynningar fyrir SR- Vélaverkstæði hf

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir SR- Vélaverkstæði kt: 600303-3090, að Vetrarbraut 12-14  580, Siglufjörður. Um er að ræða almenna stálsmíði og viðgerðaraðstöðu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga fyrir stálsmiðjur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 7. febrúar 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.