Starfsleyfi til kynningar fyrir Síld og fisk, Skiðulandi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir svínabú Síld og fisks ehf., kt: 590298-2399, að Skriðulandi,  541 Blönduósi. Um er að ræða svínabú en starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga fyrir þauleldi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 10. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.