Starfsleyfi til kynningar fyrir Hafblik fiskverkun ehf. Ólafsfirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, fiskverkun Hafbliks ehf kt. 660600-2130, að  Pálbergsgötu 1, Ólafsfirði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 10. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.