Starfsleyfi til kynningar fyrir stóra spennistöð Landsnets Varmahlíð

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlandsvestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, stóra spennistöð að Varmahlíð, Skagafirði. Um verður að ræða  stóra spennistöð. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita. Hægt er að gera athugasemd við starfsleyfisskilyrðin fyrir spennistöð Landsnets í Varmahlíð til 12. nóvember nk. og skulu þau berast skriflega til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.