Starfsleyfi til kynningar fyrir Flokku ehf. á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Flokku ehf. kt. 410606-1460, vegna sorphirðu og möttökustaðar fyrir úrgang, að Borgarteigi 12 á Sauðárkróki. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina er að finna hér. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 12. nóvember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.