Starfsleyfi til kynningar fyrir aðstöðu Vegagerðarinnar á Hvammstanga

vegna viðgerðaraðstöðu, aðra almenna aðstöðu, tækja- og áhaldageymslu

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Vegagerðina á Hvammstanga vegna viðgerðaraðstöðu, aðstöðu og tækjageymslu að Höfðabraut, 530 Hvammstanga. Um er að ræða viðgerða-, viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir Vegagerðina á Hvammstanga og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru  almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 28. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.