Starfsleyfi til kynningar fyrir vélaþjónustuna að Messuholti

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir verkstæðið að Messuholti ehf. kt: 640306-0830, að Messuholti  551, Sauðárkróki. Um er að ræða bifreiða og vélaverkstæði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 28. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.