Starfsleyfi til kynningar Hreingerningastöð Ágústs

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Hreingerningastöð Ágústs kt: 030554 3109, að Hvammstangabraut 13a,  530 Hvammstanga. Um er að ræða bón- og bílaþvottastöð. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 28. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.