Starfsleyfi til kynningar fyrir Fiskmarkað Snæfellsbæjar á Skagaströnd

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, fiskmóttöku Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar að  Fjörubraut 9 á Skagaströnd. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 10. september nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.