Starfsleyfi til kynningar fyrir Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar
vegna véla og bifreiðaverkstæði að Búlandi 1 og 3 á Hvammstanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar, kt. 520882-0219 vegna véla og bifreiðaverkstæði að Búlandi 1 og 3, 530 Hvammstanga. Um er að ræða vélaviðgerðir, bifvélaviðgerðir og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 18. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.