Starfsleyfi til kynningar fyrir Þjónustumiðstöð Húnaþings vestra

vegna viðgerðaraðstöðu, aðra almenna aðstöðu, tækja- og áhaldageymslu

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir áhaldahús Skagastrandar, vegna viðgerðaraðstöðu, aðstöðu og tækjageymslu að Búlandi 1, 530 Hvammstanga. Um er að ræða viðgerða-, viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir þjónustumiðstöð Húnaþings vestra, áhaldageymsla fyrir veitur, bifreiðar, þungavinnuvélar og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 9. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.