Starfsleyfi til kynningar fyrir Flosa Eiríksson verktaka vegna vélageymslu, þvotta- og viðhaldsaðstöðu á Laugarbakka

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Flosa Eiríksson, vegna viðgerðaraðstöðu og vélageymslu á Laugarbakka, 531 Hvammstanga. Um er að ræða viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir Flosa Eiríksson, verktaka, þungavinnuvélar, aðrar vinnuvélar og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 9. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.