Starfsleyfi til kynningar fyrir Áhaldahús Skagastrandar vegna viðgerðaraðstöðu, aðra almenna aðstöðu, tækja- og áhaldageymslu

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir áhaldahús Skagastrandar, vegna viðgerðaraðstöðu, aðstöðu og tækjageymslu á Skagaströnd, 545 Skagaströnd. Um er að ræða viðgerða-, viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir áhaldahús Skagastrandar, áhaldageymsla fyrir veitur, bifreiðar, þungavinnuvélar og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 9. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.