Starfsleyfi til kynningar fyrir Vinnuvélar Símonar ehf vegna viðgerðaraðstöðu og vélageymslu á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Vinnuvélar Símonar ehf, vegna viðgerðaraðstöðu og vélageymslu að Borgarmýri 5 og Borgartúni 1 a, 550 Sauðárkróki. Um er að ræða viðgerða-, viðhalds-, þvotta- og geymsluaðstöðu fyrir Vinnuvélar Símonar, Vörubíla hennar, aðrar þungavinnuvélar og annað er starfið varðar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 5. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.