Starfsleyfi til kynningar, L-7 verktakar, Siglufirði

vegna rekstrarvörubifreiða og þungavinnuvéla fyrir byggingaiðnað

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir L-7 vertaka, Ránargötu 16, 580 Siglufirði, kt. 420614-0710, vegna reksturs vörubifreiða og þungavinnuvéla. Um er að ræða verktakavinnu fyrir byggingaiðnað, með eða án viðgerða-, viðhalds-, eða þvottaaðstöðu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru  sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 1. maí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.