Starfsleyfi til kynningar, Ágúst Þorbjörnsson

vegna rekstrar hópferðabifreiða frá Hvammstanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Ágúst Þorbjörnsson, vegna reksturs hópferðabifreiða, Garðavegi 21, 530 Hvammstangi. Um er að ræða lítinn rekstur hópferðabifreiða, með eða án viðgerða-, viðhalds-, þvottaaðstöðu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 1. maí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.