Starfsleyfi til kynningar fyrir Ýr trésmíðaverkstæði á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Ýr trésmíðaverkstæði sem starfrækt er við Aðalgötu 24a, á Sauðárkróki. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn starfsleyfisskilyrði sbr. auglýsingu 582/2000. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin fyrir starfsemina, til 16. apríl nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.