Starfsleyfi til kynningar fyrir niðurrif útihúsa að Vesturhlíð í Húnavatnshreppi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir niðurrif útihúsa að Vesturhlíð í Húnavatnshreppi, 541 Blönduósi, landnúmer 176578, fastanr. 213-7628, matshluta 02 0101 og 03 0101. Húsin voru byggð 1956. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru sértæk starfsleyfisskilyrði, fyrir niðurrif á mannvirkjum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina, til 6. mars nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra