Starfsleyfi til kynningar fyrir Vegagerðina Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík að Tjörn á Vatnsnesi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, Vegagerð ríkisins, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík. Um er að ræða byggingu á steyptum stokk yfir Tjarnará á Vatnsnesi. Við starfsemina eru kaffiaðstaða, snyrtingar og verkfæraskúrar. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn samræmd starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir vinnubúðir Vegagerðarinnar við Tjörn á Vatnsnesi og starfsaðstöðuna, til 17. janúar nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.  Hér eru samræmdu starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar uppfærð með vísan í nýjar reglugerðir.