Starfsleyfi til kynningar fyrir Olís, Ketilási

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Olíufélag Íslands ehf, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir bensínstöð Olís að Ketilási Fljótum.
Um verður að ræða sjálfsafgreiðslu og hér má fá nánari upplýsingar um fyrirhugaðan rekstur.

Fyriryrirhugað að gefa út starfsleyfi til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum fyrir bensínstöðvar á Norðurlandi vestra. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 17. janúar 2019. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.