Starfsleyfi til kynningar fyrir jarðboranir við Húnavelli

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði Alvarr ehf. til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir jarðboranir við Húnavelli. Um er að ræða hitastigulsborhola fyrir RARIK. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru að finna hér. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 2. janúar 2019. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.