Starfsleyfi til kynningar fyrir brennu í Varmahlíð

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir brennu í Varmahlíð. Um er að ræða áramótabrennu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru starfsleyfisskilyrði fyrir brennur á Norðurlandi vestra. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir brennuna í Varmahlíð sem verður við Efri – byggðaveg, til 24. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.