Starfsleyfi til kynningar fyrir brennu Hólum í Hjaltadal

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir brennu í landi Hóla í Hjaltadal. Um er að ræða áramótabrennu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru starfsleyfisskilyrði fyrir brennur á Norðurlandi vestra. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir brennu í landi Hóla, til 24. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.