Starfsleyfi til kynningar fyrir brennu við Hvammstanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir brennu við Hvammstanga. Um er að ræða áramótabrennu. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru  starfsleyfisskilyrði fyrir brennur á Norðurlandi vestra. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir brennu við Vallarhöfða sunnan Hvammstanga, til 20. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.