Starfsleyfi til kynningar fyrir skotvöll á Ólafsfirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir skotvöll Skotfélags Ólafsfjarðar. Um er að ræða völl sem staðsettur er út við muna Ólafsfjarðarganga á Ólafsfirði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér  og yfirlitsmynd yfir skipulag svæðis er hér. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir skotvöllinn, til 21. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra