Starfsleyfi til kynningar fyrir S.G verkstæði, á Borðeyri

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir bifreiðaferkstæði S.G. verkstæði ehf., á Borðeyri. Um er að ræða endurnýjun á leyfi til reksturs bifreiðaverkstæðis, á Borðeyri. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn samræmd starfsleyfisskilyrði, fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðið á Borðeyri, til 6. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Hér eru samræmdu starfsleyfisskilyrðin með vísan í nýjar reglugerðir.