Starfsleyfi til kynningar fyrir verkstæði fyrir þungavinnuvélar, verkstæðisaðstöðu Þórðar Hansen á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, verkstæði fyrir þungavinnuvélar, Þórðar Hansen ehf. Um verður að ræða  verkstæðisaðstöðu að Borgartúni 8, á Sauðárkróki. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn samræmd starfsleyfisskilyrði, fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðisaðstöðuna að Borgartúni 8 á Sauðárkróki, til 3. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. Hér eru samræmdu starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar uppfærð með vísan í nýjar reglugerðir.