Starfsleyfi til kynningar fyrir verkstæði Léttitæknis á Blönduósi

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, verkstæði Léttitæknis að  Efstubraut 2, á Blönduósi. Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi fyrirtækisins á Blönduósi. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru almenn samræmd starfsleyfisskilyrði, fyrir mengandi starfsemi. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrði fyrir verkstæðisaðstöðuna að Efstubraut 2 á Blönduósi, til 6. desember nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.  Hér eru samræmdu starfsleyfisskilyrði Umhverfisstofnunar uppfærð með vísan í nýjar reglugerðir.