Neyslurvatnið á Ólafsfirði er hæft til neyslu
Staðfest er að sýni sem Heilbrigðiseftirlitið tók af neysluvatni, þann 1. nóvember sl. á Ólafsfirði; í annars vegar vatnstanki Brimnesdals og hins vegar Hornbrekku, voru fullnægjandi sbr. reglugerð um neysluvatn nr. 536/2001. Óverulegt frávik var í sýni sem tekið var úr neysluvatni Múlalindar. Það er því ljóst að þær endurbætur sem unnið hefur verið við á sl. vikum hafa skilað tilætluðum árangri og ekki er lengur þörf á að sjóða neysluvatnið.
Vinna stendur yfir við að koma fyrir útfjólublárri geislun á neysluvatnið, sem tryggir fullkomið öryggi og gæði.