Sjóða ber neysluvatnið á Ólafsfirði
 
Staðfest hefur verið að sýni sem Heilbrigðiseftirlitið tók þann 5. október sl. á Ólafsfirði, innihéldu Escherichia coli (E. coli) gerla. Vatnsveitan á Ólafsfirði fær vatn úr 2 vatnsbólum þ.e. úr Múla og Brimnesdal. Niðurstaða sýnatöku gefur til kynna að vatnsbólið sem þjónar einkum nyrðri hluta bæjarins m.a. fiskvinnslunum á Ólafsfirði sé í lagi og vandinn sé bundinn við vatnsbólið í Brimnesdal.

Flestar E. coli bakteríur eru skaðlitlar, en ef E. coli finnst í neysluvatni, þá bendir það til þess að hættulegar bakteríur geti leynst í vatninu. Íbúum er því ráðlagt sem varúðarráðstöfun að sjóða vatnið.  Umhverfis- og tæknideild Fjallabyggðar hefur verið upplýst um málið og hefur nú þegar hafið vinnu við endurbætur.