Gott öryggi á leikskólum
Í sjónvarpsfréttum RÚV þann 5. júní 2017, var fullyrt að eftirlit og ástand leiktækja á opinberum leiksvæðum m.a. leikskólum væri í molum. Umræddar fullyrðingar sem fallnar eru til þess að valda foreldrum barna óþarfa ótta, standast ekki nánari skoðun.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skoðar alla leikskóla landsins reglulega og hafa nokkrir heilbrigðisfulltrúar sérhæft sig í öryggismálum leikvalla og – tækja. Liður í opinberu eftirliti er að fara yfir skráningar á slysum og óhöppum í leikskólum og er ekkert þar að finna sem gefur til kynna að alvarlegum slysum á leikskólum hafi fjölgað til muna. Heilbrigðiseftirlitið er víða í góðu sambandi við lækna heilbrigðisstofnanna vegna mála sem snúa að eftirlitinu. Engin ábending hefur borist frá Heilbrigðisstofnunum á svæðinu, sem snýr að slysagildrum á leikskólum. Í leikskólum starfa vel menntaðir leikskólakennarar sem hafa mjög góða þekkingu á þeim þáttum sem snúa að starfi og starfsumhverfi leikskóla. Þeir eru vel meðvitaðir um öryggismál og hafa gjarnan forgöngu um úrbætur á þeim þáttum sem þarfnast lagfæringa. Fyrir utan opinbera eftirlitið og innra eftirlit leikskólanna sjálfra, þá fer fram faggild aðalskoðun á leikvallatækjum og leiksvæðum, í mörgum sveitarfélögum, á sviði faggiltra skoðunarstofa. Aðalskoðun er gerð á grundvelli reglugerðar 942/2002.
Úrbóta á öryggi leiktækja er hins vegar helst þörf hjá ferðaþjónum sem hafa ósamþykkt tæki á boðstólnum fyrir heimilsfólk og jafnvel gesti. Það er nauðsynlegt að móta stefnu hvernig megi koma þeim málum í betra horf og skýra ábyrgð og kröfur til rekstraraðila.