Drög að starfsleyfi fyrir plastbátagerðina Mótun

Drög að starfsleyfisskilyrðum fyrir plastbátagerðina Mótun ehf á Sauðárkróki sem til stendur að starfrækja að Sæmundargötu 1b og Hesteyri 2, Sauðárkróki.

Hér má sjá: drögin að starfsleyfi, umsókn um starfsleyfi, upplýsingar um geymslusvæði og framleiðsluferil. Þeir sem telja sig málið varða eru hvattir til að kynna sér starfsleyfistillögurnar og gera athugsemdir við þær ef þurfa þykir.  Skriflegar athugasemdir skulu hafa borist til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra í síðasta lagi 17. febrúar 2014.