Innköllun á gervimunntóbaki – „Kickup Real white“

Matvælastofnun hefur innkallað svokallaða munnpúða sem innihalda koffín.  Um er að ræða Kickup Real white og kickup strong.

Varan líkist munntóbaki í grisjupokum og er ætla til að setja undir vör líkt og munntóbak.  Innihaldið er aðallega vítamín og koffín.  Skv. lögum nr 93/1995 um matvæli, er skilgreining um matvæli eftirfarandi:  Matvæli eru hvers konar efni eða vörur, hvort sem þau eru fullunnin, unnin að hluta eða óunnin, sem fólki er ætlað að neyta eða sem eðlilegt er að vænta að fólk neyti. Hugtakið „matvæli“ tekur einnig til drykkja, tyggigúmmís og hvers kyns efna, þ.m.t. neysluvatns, sem bætt er af ásettu ráði í matvæli við framleiðslu þeirra, vinnslu eða meðferð, svo og fæðubótarefna.

Skv. reglug. 980/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1334/2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem  hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli msbr. er íblöndun koffíns í önnur matvæli en drykkjarvörur óheimil, en koffín er að finna í innihaldslýsingu vörunnar.

Verið er að hafa samband við verslanir á Norðurlandi vestra, til þess að innkalla vöruna.