Við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á neysluvatni þann 19. október 2026 á Siglufirði greindust E.coli gerlar í sýninu. Að svo stöddu er ekki ljóst hvað veldur menguninni.

Í samræmi við 14. gr. reglugerðar nr. 536/2001 um neysluvatn, ráðleggur Heilbrigðiseftirlitið í samráði við Matvælastofnun að neysluvatnið á Siglufirði sé soðið fyrir neyslu. Leiðbeiningar um suðu neysluvatns má finna hér.

Heilbrigðiseftirlitið mun upplýsa íbúa þegar nauðsynlegum úrbótum á vatnsveitunni er lokið og þegar vatnsgæði hafa verið endurheimt.