Hér með eru auglýst drög að endurnýjun starfsleyfis fyrir átta mismunandi aðveitustöðvar í umsjón RARIK ehf. Aðveitustöðvar eru á eftirfarandi starfstöðvum: Laxárvatni, Ólafsfirði, Brimnesi, Skagaströnd, Sauðárkróki, Siglufirði, Hrútatungu, og Varmahlíð. Umsækjandi er RARIK ehf. kt. 520269-2669 og barst umsóknin heilbrigðiseftirlitinu þann 17. febrúar 2026.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til mengunarvarna. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja m.a. eftirfarandi reglugerðir: nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, og nr. 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi.
Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfsleyfisskilyrði fyrir stórar spennustöðvar. (ust.is).
Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 17. mars 2026.