Hér með eru auglýst drög að endurnýjun starfsleyfis fyrir Leikskólann Ásgarð, Garðavegur 7, 530 Hvammstangi. Umsækjandi er Húnaþing vestra. kt. 540598-2829 og sækir Guðný Kristín Guðnadóttir um sem forsvarsmaður. Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu þann 17. desember 2025.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út starfsleyfi, sem nær til hollustuhátta. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Á þeim byggja eftirfarandi reglugerðir: nr. 903/2024 um hollustuhætti, nr. 536/2001 um neysluvatn, nr. 798/1999 um fráveitur og skólp, ásamt nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 9. gr reglugerðar nr. 903/2024 um hollustuhætti.

Starfsleyfisskilyrðin munu byggja á: Starfsleyfisskilyrði fyrir leikskóla. (ust.is).

Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin. Athugasemdir skulu berast á netfangið hnv@hnv.is, eða skriflega fyrir 27. febrúar 2026.