Tillaga að starfleyfi fyrir brennu á Hvammstanga.

Sótt var um starfleyfið þann 15. desember og er ábyrgðarmaður Ólafur Már Sigurbjartsson.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Húnar leyfi til að halda brennu þann 6. janúar, 2026, kl. 16:00-19:00. Staðsetning verður við Höfða, sunnan Hvammstanga. Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu og leyfi fyrir stærri brennur. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 6. janúar, 2026.