Tillaga að starfleyfi fyrir flugeldasýningu á Skagaströnd.
Sótt var um starfleyfið þann 25. nóvember, 2025 og er ábyrgðarmaður Magnús Líndal Þrastarson.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Strönd leyfi til að halda flugeldasýningu þann 31. desember 2025, kl. 20:00-22:00, staðsetning er norðan við Skagaströnd. Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu flugeldasýninga. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is fyrir 23. desember 2025.