Tillaga að starfleyfum fyrir tvær flugeldasýningar á Siglufirði.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra veitir Björgunarsveitinni Strákar leyfi til að halda flugeldasýningar þann 31. desember, 2025, kl. 19:00-22:00 og þann 06. janúar, 2026, kl. 18:00-20:00. Staðsetning á flugeldasýningum er á Norðurtanga á Siglufirði. Sótt var um starfsleyfið þann 09. september og er ábyrgðarmaður Magnús Magnússon. Athugasemdir fyrir þessa sýningu skulu berast til Heilbrigðiseftirlitsins fyrir 16. desember, 2025.
Þetta leyfi er veitt í samræmi við eftirfarandi lög og reglugerðir fyrir skráningu flugeldasýninga. Ef breytingar verða á starfseminni skal tilkynna það til Heilbrigðiseftirlitsins.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfseminar ber að auglýsa í minnst 4 vikur og skulu athugasemdir berast á netfangið hnv@hnv.is.