Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi til kynningar fyrir niðurrif kofa í Bólu, 561 Varmahlíð, eigandi er Reynald Gunnarsson kt 200648-3749 . Umsóknin barst heilbrigðiseftirlitinu 20. maí 2025 og  sótti Reynald Gunnars um leyfið sem eigandi húsnæðisins.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra gefur út tímabundið starfsleyfi, vegna niðurrifsins. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Starfsleyfisskilyrðin miðast við starfsleyfisskilyrði fyrir niðurrif mannvirkja, m.a. þar sem er asbest: Starfsleyfisskilyrði vegna tímabundiðs starfsleyfi fyrir niðurrif kofa í landi Bólu 561 Varmahlíð,  og í framhaldinu verður gefið út starfsleyfi sbr. reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum 5. gr reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Auglýsingin var birt þann 20 maí 2025 og tekið er við athugasemdum til 17. júní 2025.