Starfsleyfisskilyrði eru hér til kynningar fyrir Sláturhús KVH ehf.  vegna starfsemi fyrirtækisins að Hafnarbraut 5, 530 Hvammstanga , í  samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit . Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi vegna matvælavinnslu m.a. svíðing sviðahausa, pökkun og frysting á sauðfjárafurðum.  Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði eru [pdf-embedder url=“http://hnv.is/wp-content/uploads/2024/02/Almenn-starfsleyfisskilyrdi-fyrir-mengandi-starfsemi.pdf“ title=“Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi“], en um er að ræða samræmd almenn starfsleyfisskilyrði.  Hægt er að gera athugasemdir við skilyrðin til 28. mars nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.