Starfsleyfi til kynningar fyrir móttöku úrgangs á Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlíð

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði fyrir móttökustöðvar Íslenska gámafélagið á Hofsósi, Sauðárkróki og Varmahlið, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir starfsemi ÍGF í Skagafirði. Um er að ræða móttökustöðvar fyrir úrgang sem reknar verða á vegum Íslenska gámafélagsins.  Starfsleyfisskilyrðin fyrir starfsemina, sem fyrirhugað er að gefa út til 12 ára er hægt að sjá hér að neðan.  Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 10. nóvember 2023. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra. um starfsemina.  Nánari upplýsingar um starfsemina er að finna hér í greinargerð sem ÍGF lét fylgja með umsókn um starfsleyfi.