Starfsleyfi til kynningar fyrir JE vélaverkstæði
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir JE vélaverkstæði kt: 491298-2199, að Gránugötu  13  580, Siglufjörður. Um er að ræða almennt vélaverkstæði og plastiðnað, einkum viðgerðir og smíði báta. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga fyrir vélsmiðjur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 23. febrúar 2021. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.