Starfsleyfi fyrir Árhvamm ehf að  Lambeyri
Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Árhvamm ehf. kt: 501110 0430, að Lambeyri, 560 Varmahlíð. Um er að ræða trésmíðaverkstæði og aðstaða fyrir byggingaverktaka. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér að neðan, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 1. júlí nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.