Starfsleyfi til kynningar fyrir N1, Víðigerði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði N1 ehf. kt. 411003-3370, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir bensínstöð N1 að Víðigerði, en um er að ræða nýja sjálfsafgreiðslustöð. Hér má sjá mynd af afgreiðsluplani og ofanjarðargeymum sem fyrirhugað er að staðsetja í gámi og hér er mynd af siturlögn.

Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 1. ágúst 2019. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.