Starfsleyfi til kynningar fyrir verkstæðið að Hóli

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Verkstæðið Hóli kt: 600319-2050, að Hóli  561, Varmahlíð. Um er að ræða bifreiða og vélaverkstæði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 1. ágúst nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.