Endurnýjun á starfsleyfi fyrir Trésmiðjuna Borg á Sauðárkróki

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir Trésmiðjuna Borg ehf. kt: 690806 0880, að Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki. Um er að ræða trésmíðaverkstæði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru hér, en um er að ræða samræmd starfsleyfiskilyrði Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 28. október nk. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.