Starfsleyfi til kynningar fyrir eldsneytisafgreiðslu N1, Strandgötu 1, Hvammstanga

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði N1 ehf. kt. 411003-3370, til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyir eldsneytisafgreiðslu N1 að Strandgötu 1, Hvammstanga,  en um er að ræða nýja sjálfsafgreiðslustöð. Hér má sjá mynd af afgreiðsluplani og ofanjarðargeymum sem fyrirhugað er að staðsetja við Strandgötu 1, hér er umsóknin.

Fyrirhugað er að gefa út starfsleyfið til 12 ára, samkvæmt meðfylgjandi starfsleyfisskilyrðum. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin til 1. febrúar 2020. Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.