Starfsleyfi til kynningar fyrir Knoll á Ólafsfirði

Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra á Sauðárkróki að Sæmundargötu 1, fyrir, fiskverkun Knolls ehf.              kt. 471106-1350, að  Múlavegi 7, Ólafsfirði. Fyrirhuguð starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina eru samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir fiskvinnslur. Hægt er að gera athugasemdir við starfsleyfisskilyrðin, til 15. apríl nk.  Athugasemdir skal gera skriflega og senda til Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.