{"id":379,"date":"2018-02-13T10:10:02","date_gmt":"2018-02-13T10:10:02","guid":{"rendered":"http:\/\/vefsida.tolvuland.is\/?p=379"},"modified":"2022-03-17T10:10:51","modified_gmt":"2022-03-17T10:10:51","slug":"umsogn-um-fiskeldi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/2018\/02\/13\/umsogn-um-fiskeldi\/","title":{"rendered":"Ums\u00f6gn um fiskeldi"},"content":{"rendered":"<p>Ums\u00f6gn um frumvarp til laga um breytingar \u00e1 l\u00f6gum sem tengjast fiskeldi\u00a0\u00a0<\/p>\n<p>H\u00e9r m\u00e1 a\u00f0 ne\u00f0an m\u00e1 lesa ums\u00f6gn um fyrirhuga\u00f0ar breytingar \u00e1 \u00e1 l\u00f6gum sem tengjast fiskeldi, en ums\u00f6gnin var samin me\u00f0 nokkrum hra\u00f0i, \u00fear sem t\u00edmaramminn var knappur. \u00dea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 lagabreytingarnar f\u00e1i vanda\u00f0a umfj\u00f6llun en um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vaxandi atvinnugrein, sem g\u00e6ti haft v\u00ed\u00f0t\u00e6k \u00e1hrif v\u00edtt og breitt um landi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p>Hofs\u00f3si, 9. febr\u00faar 2018<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\nAtvinnuvega- og n\u00fdsk\u00f6punarr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\nUms\u00f6gn um frumvarp til laga um breytingar \u00e1 \u00fdmsum laga\u00e1kv\u00e6\u00f0um sem tengjast fiskeldi<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\nFrumvarpi\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r miklar breytingar \u00e1 leyfisveitingum fyrir fiskeldi og umgj\u00f6r\u00f0 um atvinnugreinina sem er vaxandi \u00e1 landinu. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i fari\u00f0 betur \u00e1 \u00fev\u00ed ef frumvarpi\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 sent til heilbrig\u00f0isnefnda sveitarf\u00e9laga til umsagnar, en undirrita\u00f0ur vissi ekki af tilvist frumvarpsins fyrr en \u00f6rf\u00e1um d\u00f6gum \u00e1\u00f0ur en umsagnarfrestur um frumvarpi\u00f0 rann \u00fat.\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\nVel a\u00f0 merkja, heilbrig\u00f0isnefndir sveitarf\u00e9laga fara me\u00f0 hollustu- og mengunarvarnareftirlit heima \u00ed h\u00e9ra\u00f0i sbr. l\u00f6g nr 7\/1998 og h\u00f6f\u00f0u eftirlit me\u00f0 fiskeldi allt til \u00e1rsins 2015.<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00d3sk Samtaka Heilbrig\u00f0iseftirlita \u00e1 \u00cdslandi (SH\u00cd) um a\u00f0 framlengja fresti til \u00feess a\u00f0 skila inn ums\u00f6gn um frumvarpi\u00f0 hefur var synja\u00f0 og er \u00fev\u00ed ums\u00f6gnin ekki jafn \u00edtarleg og efni standa til.<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00dea\u00f0 eru \u00f6rf\u00e1 \u00e1r s\u00ed\u00f0an s\u00ed\u00f0ast voru talsver\u00f0ar breytingar \u00e1 leyfisveitingu og eftirliti me\u00f0 fiskeldi. Me\u00f0 breytingunum sem ger\u00f0ar voru \u00e1ri\u00f0 2014, \u00fe\u00e1 f\u00e6r\u00f0ist allt eftirlit me\u00f0 fiskeldi til r\u00edkisstofnananna UST og MAST, sem \u00e1\u00f0ur haf\u00f0i veri\u00f0 hj\u00e1 Heilbrig\u00f0isnefndum sveitarf\u00e9laga. \u00dea\u00f0 var gert me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 myndi lei\u00f0a til einf\u00f6ldunar og v\u00e6ri til hagr\u00e6\u00f0is fyrir atvinnugreinina, a\u00f0 UST s\u00e6i um alla \u00fatg\u00e1fu starfsleyfa og MAST t\u00e6ki a\u00f0 s\u00e9r eftirlit \u00ed umbo\u00f0i UST. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 e\u00f0lilegt a\u00f0 gera \u00fattekt \u00e1 reynslunni af breyttu verklagi \u2013 hva\u00f0 hef\u00f0i gengi\u00f0 vel og hverju \u00feyrfti a\u00f0 breyta \u00e1\u00f0ur en n\u00fdtt frumvarp sem h\u00e9r er til umsagnar v\u00e6ri lagt fram um breytt verklag vi\u00f0 eftirlit og leyfisveitingu.<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00dea\u00f0 er lj\u00f3st a\u00f0 \u00fe\u00e6r breytingar sem ger\u00f0ar voru \u00e1ri\u00f0 2014 leiddu af s\u00e9r gr\u00ed\u00f0arlegan kostna\u00f0arauka fyrir minni fiskeldisfyrirt\u00e6ki sem voru \u00e1\u00f0ur undir eftirliti heilbrig\u00f0iseftirlits sveitarf\u00e9laga. D\u00e6mi er um a\u00f0 eftirlitsgjald l\u00edtils bleikjueldisfyrirt\u00e6kis sem var enn \u00e1 frumstigi h\u00e6kka\u00f0i \u00far 22 \u00fe\u00fas. kr. og \u00ed 187 \u00fe\u00fas. kr. \u00e1 \u00e1ri. Vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn \u00e1 frumvarpinu, \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist sem ekki s\u00e9 horft til \u00fearfa l\u00e1ggr\u00f3\u00f0ursins \u00ed atvinnugreininni \u00fe.e. l\u00edtilla bleikjueldisst\u00f6\u00f0va, fiskeldi \u00ed tengslum vi\u00f0 gr\u00f3\u00f0urh\u00fas og umfangsl\u00edtils eldis \u00ed ranns\u00f3knaskyni \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 eldi H\u00e1sk\u00f3lans \u00e1 H\u00f3lum.<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00cd 9. gr. frumvarpsins er bo\u00f0a\u00f0 a\u00f0 \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 gefi\u00f0 ver\u00f0i \u00fat formlegt starfsleyfi, sem almenningur, ums\u00e6kjandi og \u00feeir sem telja sig m\u00e1li\u00f0 var\u00f0a geti gert athugasemd vi\u00f0, \u00fe\u00e1 ver\u00f0i n\u00e6gjanlegt a\u00f0 tilkynna til Umhverfisstofnunar a\u00f0 eldi\u00f0 hafi teki\u00f0 til starfa. Umr\u00e6dd skr\u00e1ning \u00ed sta\u00f0 formlegs starfsleyfis fyrirt\u00e6kja er n\u00fdbreytni sem kom inn me\u00f0 breytingum \u00e1 l\u00f6gum nr. 7\/1998 \u00e1 \u00e1rinu 2017 og var fyrst og fremst hugsa\u00f0 til hagr\u00e6\u00f0is fyrir minnih\u00e1ttar starfsemi \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 snyrti- og h\u00e1rgrei\u00f0slustofur, en alls ekki fyrir umfangsmikla starfsemi. \u00c1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 bo\u00f0a skr\u00e1ningu er jafnframt \u00e1forma\u00f0 samr\u00e1\u00f0 vi\u00f0 Umhverfisstofnun um skilyr\u00f0i rekstrarleyfis og a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i s\u00ed\u00f0an augl\u00fdst. Ferli\u00f0 sem er bo\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00fatg\u00e1fu rekstrarleyfis er ekki fastm\u00f3ta\u00f0 og h\u00e6tt er vi\u00f0 a\u00f0 breytingin ver\u00f0i talin brot \u00e1 \u00c1r\u00f3sasamningnum um a\u00f0 tryggja a\u00f0komu almennings a\u00f0 \u00e1kvar\u00f0anat\u00f6ku \u00ed umhverfism\u00e1lum. \u00deessi breyting getur valdi\u00f0 \u00f3vissu um hvernig eigi a\u00f0 fara me\u00f0 k\u00e6rur um innihald rekstrarleyfisskilyr\u00f0a sem sn\u00faa a\u00f0 umhverfism\u00e1lum. Munu \u00fe\u00e6r k\u00e6rur fara eftir k\u00e6rulei\u00f0um Umhverfisr\u00e1\u00f0uneytisins e\u00f0a Atvinnuvegar\u00e1\u00f0uneytisins. \u00dea\u00f0 gilti einu hvor lei\u00f0in v\u00e6ri valin &#8211; lei\u00f0in yr\u00f0i stj\u00f3rns\u00fdsluleg \u00f3f\u00e6ra!<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00de\u00f3 svo ekki hafi gefist f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 veita SH\u00cd lengri frest til \u00feess a\u00f0 koma fram me\u00f0 formlegar athugasemdir vi\u00f0 frumvarpi\u00f0, \u00fe\u00e1 er \u00e1fram bo\u00f0in fram a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 vinnu vi\u00f0 frumvarpi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00fea\u00f0\u00a0 fer \u00ed s\u00edna endanlegu mynd. \u00dea\u00f0 skiptir afar miklu m\u00e1li a\u00f0 r\u00edkt samr\u00e1\u00f0 ver\u00f0i haft vi\u00f0 sveitarf\u00e9l\u00f6gin og stofnanir \u00feeirra vi\u00f0 umgj\u00f6r\u00f0 fiskeldis enda \u00fearf a\u00f0 taka tillit til fj\u00f6lmargra \u00fe\u00e1tta \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 skipulag hafna, fr\u00e1veitu og \u00feynningarsv\u00e6\u00f0a og vatns\u00f6flunnar.<br \/>\n\u00a0<br \/>\nVir\u00f0ingarfyllst\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\nSigurj\u00f3n \u00de\u00f3r\u00f0arson\u00a0<br \/>\nritari SH\u00cd<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ums\u00f6gn um frumvarp til laga um breytingar \u00e1 l\u00f6gum sem tengjast fiskeldi\u00a0\u00a0 H\u00e9r m\u00e1 a\u00f0 ne\u00f0an m\u00e1 lesa ums\u00f6gn um fyrirhuga\u00f0ar breytingar \u00e1 \u00e1 l\u00f6gum sem tengjast fiskeldi, en ums\u00f6gnin var samin me\u00f0 nokkrum hra\u00f0i, \u00fear sem t\u00edmaramminn var knappur. \u00dea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 lagabreytingarnar f\u00e1i vanda\u00f0a umfj\u00f6llun en um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vaxandi atvinnugrein, [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","_monsterinsights_skip_tracking":false,"_monsterinsights_sitenote_active":false,"_monsterinsights_sitenote_note":"","_monsterinsights_sitenote_category":0,"footnotes":""},"categories":[5],"tags":[],"class_list":["post-379","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-tilkynningar"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/379","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=379"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/379\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":381,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/379\/revisions\/381"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=379"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=379"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/hnv.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=379"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}